Flokkað undir: Uncategorized
Hér kemur síðasta bloggfærslan mín allavega í bili. Nú er sumarið að koma með öllum sínum verkum, nú fer að verða tími til að sinna garðinum, sauma út og hanna brúðarkjól handa Laugunni minni, jafnvel vera í bústaðnum og tjilla ( nýyrði). Nú er líf mitt að koma aftur þó tíminn til að gera ekki neitt verði aldrei til staðar er mér slétt sama, ég vil ekki svoleiðis tíma. Þegar upp er staðið snýst þetta um að eiga líf það er bara spurning hvernig líf við viljum eiga. Allt sem maður tekur sér fyrir hendur krefst vinnu, mis mikillar og mis krefjandi. Það að eignast barn krefst þess að maður sé til staðar 24 tíma á sólahring í 18 ár en eftir það þegar þeim hentar, svo er það bara spurning hvernig maður vinnur úr þessu öllu. Það að vera í skóla krefst líka mismikilar vinnu stundum hefur maður það á tilfiningunni að maður þurfi velja á milli fjölskyldu og skóla. Fjölskyldan er þolinmóð og veit að þetta tekur enda og nú er þessari önn að ljúka.
Flokkað undir: Uncategorized
Þá er páskafríið búið ef páskafrí skyldi kalla, en hvað um það. Þetta voru góðir dagar þar sem mikið var borðað af alla vega góðum mat eins og Skötusel, sem er reyndar ljótasti fiskur veraldar en afskaplega góður og bragðast líkt og humar. Og ekki má gleyma páskalambinu sem var slátrað bara fyrir soninn sem lét svo lítið að heimsækja aldraða foreldra sína í tilefni páskanna og að lokum hamborgarhryggurinn sem var eldaður fyrir burt fluttar dætur sonarins. Á milli þess sem maður belgdi sig út af mat, var kíkt í skólabækur. Voru það ekki verkefni tengd Upplýsingartækni því þau voru kláruð fyrir páska en vegna net leysis var verkefnið ekki set inn á síðuna þar sem það hafði farist fyrir áður en hvarf til fortíðar átti sér stað.
