Astasig’s Blog


Freyja á Íslandsmeistaramóti í badminton
mars 15, 2009, 5:18 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Freyjan mín að taka við silfurverðlaunum á Íslandsmeistaramóti í badminton núna um helgina. Ég tók skólabækurnar með. Las  svo allt sem ég gat meðan hún var ekki að spila. Þetta er fyrsta önnin mín í þessum skóla þar sem ég á ekkert líf, get ekki gert neitt nema að koma náminu líka þar fyrir. Það er alveg nóg að þurfa alltaf að setja fjölskylduna til hliðar vegna skólans. En þegar maður er farinn að setja líf sitt á hóld vegna skólans þá finnst mér komið alveg nóg. Er alvarlega að hugsa um að segja mig úr einhverjum af þessum áföngum. Ég er í fjórum áföngum þar sem ég þarf að skila minnst 4 stórum verkefnum fyrir hvert þessara faga.

Freyja á verðlaunapalli á Íslandsmóti í badminton 17.3.09

Freyja á verðlaunapalli á Íslandsmóti í badminton 17.3.09


3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Til hamingju með Freyju þína ;)
Ég er alveg sammála með þetta álag í skólanum. Þessi önn er allt of strembin og er ég alveg að fara yfirum af stressi. En við hljótum að komast yfir þetta eins og síðustu annir.

Comment af helenajohanns

Já ég er alveg sammála þér Ásta, verkefnaálagið er alveg að sliga mann þessa önnina. En þetta fer alveg að verða búið. Þú klárar þetta;) Borgar sig ekkert að vera að geyma þetta…. og svo er bara 1. ár eftir;) Gangi þér vel!!

Comment af Sæborg

Flott hjá dóttur þinni :)
Ekki hætta Ásta…það eru ekki nema 3 kennsluvikur eftir og svo er þetta bara búið! Þú hefur þetta :)
Gangi þér vel!

Comment af Elísabet




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>