Astasig’s Blog


Sólskinsdrengurinn
febrúar 14, 2009, 2:10 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Ég sá myndina “Sólskinsdrengurinn” í síðustu viku. Þessi mynd er að mörgu leyti mjög athyglisverð. Maður fær innsýn í heim fjölskyldu með einhverft barn, hvernig líf barnsins er og  fjölskyldunnar. En auðvitað getur enginn sem ekki er í þessari aðstöðu skilið til fulls hvernig líf þetta er. Við sem erum foreldrar vitum þó að okkar ósk er að börnin okkar fái notið þess besta, eigi kost á góðri menntun og eigi góða heilsu og helst af öllu hamingjusamt líf. Við reynum eftir mætti að hjálpa börnunum okkar út í lífið því við vitum að við verðum ekki alltaf til staðar fyrir þau. Enginn er eilífur, þannig hugsa líka foreldrar Sólskinsdrengsins. Þannig skil ég ákvörðun þeirra að freista gæfunnar og leita eftir “lækningu” heiminn á enda. Ég er efasemdarmanneskja og hef ekki trú á þessari aðferð. Ekki frekar en ég hafði trú á Íslensku menntasamtökunum á sínum tíma, eða að það virki að nota S.M.T. á alla nemendur. Ef það væri farið út í rannsóknir á þessari aðferð og það yrði sannað að hún virki þá væri ég til í að skoða hana en þangað til segi ég nei takk. Skýringuna hjá mér má líka finna í því að í þau sjö ár sem ég bjó í Danmörku komu upp mál þar sem foreldrar voru ákærðir fyrir kynferðislega misnotkun á fötluðum börnum sínum og var svipuð  aðferð og er sýnd í myndinni notuð við þá upplýsingaöflun. Þegar þessi mál voru skoðuð ofaní kjölinn kom í ljós að kennari barnanna stýrði svörum barnanna og réði þar af leiðandi útkomunni.


No Comments Yet hingað til
Skrá ummæli



Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>