Astasig’s Blog


Síðasta bloggið
apríl 26, 2009, 7:46 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Hér kemur síðasta bloggfærslan mín allavega í bili. Nú er sumarið að koma með öllum sínum verkum, nú fer að verða tími til að sinna garðinum, sauma út og hanna brúðarkjól handa Laugunni minni, jafnvel vera í bústaðnum og tjilla ( nýyrði). Nú er líf mitt að koma aftur þó tíminn til að gera ekki neitt verði aldrei til staðar er mér slétt sama, ég vil ekki svoleiðis tíma. Þegar upp er staðið snýst þetta um að eiga líf það er bara spurning hvernig líf við viljum eiga. Allt sem maður tekur sér fyrir hendur krefst vinnu, mis mikillar og mis krefjandi. Það að eignast barn krefst þess að maður sé til staðar 24 tíma á sólahring í 18 ár en eftir það þegar þeim hentar, svo er það bara spurning hvernig maður vinnur úr þessu öllu. Það að vera í skóla krefst líka mismikilar vinnu stundum hefur maður það á tilfiningunni að maður þurfi velja á milli fjölskyldu og skóla. Fjölskyldan er  þolinmóð og veit að þetta tekur enda og nú er þessari önn að ljúka.



Páskafrí
apríl 14, 2009, 12:56 pm
Flokkað undir: Uncategorized

 

Þá er páskafríið búið ef páskafrí skyldi kalla, en hvað um það. Þetta voru góðir dagar þar sem mikið var borðað af alla vega góðum mat eins og Skötusel, sem er reyndar ljótasti fiskur veraldar en afskaplega góður og bragðast líkt og humar. Og ekki má gleyma páskalambinu sem var slátrað bara fyrir soninn sem lét svo lítið að heimsækja aldraða foreldra sína í tilefni páskanna og að lokum hamborgarhryggurinn sem var eldaður fyrir burt fluttar dætur sonarins. Á milli þess sem maður belgdi sig út af mat, var kíkt í skólabækur. Voru það ekki verkefni tengd Upplýsingartækni því þau voru kláruð fyrir páska en vegna net leysis var verkefnið ekki set inn á síðuna þar sem það hafði farist fyrir áður en hvarf til fortíðar átti sér stað.



Verkefni 3
mars 30, 2009, 10:03 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Þá er þetta búið ,blóð sviti og tár. Næst þegar svona torf verður á vegi mínum hef ég samband við prófarkalesara. Ég hef örugglega eitt 40 tímum í þetta verkefni og það sem verst er ég sé engan tilgang með því. Þetta verkefni eykur ekki skilning minn á upplýsingartækni, þetta er eintóm tímaeyðsla. Kannski það hafi aukið á skilning minn á enskum tækniorðum sem ég sé ekki í svipinn að muni nýtast mér í daglegu starfi sem kennari.



Freyja á Íslandsmeistaramóti í badminton
mars 15, 2009, 5:18 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Freyjan mín að taka við silfurverðlaunum á Íslandsmeistaramóti í badminton núna um helgina. Ég tók skólabækurnar með. Las  svo allt sem ég gat meðan hún var ekki að spila. Þetta er fyrsta önnin mín í þessum skóla þar sem ég á ekkert líf, get ekki gert neitt nema að koma náminu líka þar fyrir. Það er alveg nóg að þurfa alltaf að setja fjölskylduna til hliðar vegna skólans. En þegar maður er farinn að setja líf sitt á hóld vegna skólans þá finnst mér komið alveg nóg. Er alvarlega að hugsa um að segja mig úr einhverjum af þessum áföngum. Ég er í fjórum áföngum þar sem ég þarf að skila minnst 4 stórum verkefnum fyrir hvert þessara faga.

Freyja á verðlaunapalli á Íslandsmóti í badminton 17.3.09

Freyja á verðlaunapalli á Íslandsmóti í badminton 17.3.09



Leikur með myndir
mars 3, 2009, 9:45 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Það er gaman að leika sér með myndvinnsluforritið Jasc Paint Shop Pro:

Tekið í björtu....

Tekið í björtu....



Tölvur
febrúar 18, 2009, 8:46 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Hvað er hægt að skrifa um tölvur fyrir þann sem vill bara nota þær til að lesa fréttir senda mail og leita að ýmsum upplýsingum bæði nytsamlegum og ekki. Uppáhalds dálkurinn fullur að rússneskum síðum sem allar geyma útsaum, því að allur saumaskapur vekur áhuga minn. Þar er einnig að finna síður sem selja útsaum. Ég er svo vel sett að vera gift rafeindaverkfræðing þannig að ef tölvan er ekki að gera það sem ég vil þá er verkfræðingnum bent á það og hann kippir því í lag. Oft fylgja líka með smá leiðbeiningar með svo sömu mistökin verði ekki gerð aftur. Ég hef haft tölvu til umráða í 25 ár en netið ekki nema í 12 ár. Á þessum tíma hef ég gert mörg mistök og lært margt nýtt. Ég tel mig líka hafa lært mikið á þessum árum. Börnin mín þekkja ekkert anna en líf með tölvum og hafa fengið að fikta sig áfram, samanber dóttur mína sem er fædd 1987. Þegar hún var 7 ára fann hún reiknivél í tölvunni og notaði hana til að reikna nokkur dæmi í stærðfræðibókinni sinni eða þar til að foreldrarnir áttuðu sig á hvað stúlkan var að sýsla. Maðurinn minn bjó líka til leiki í tölvuna fyrir börnin okkar. Ég hef samt aldrei bloggað fyrr en nú og geri ekki ráð fyrir að leggja þetta fyrir mig. Ég er á þeirri skoðun að maður læri svo lengi sem maður lifir, spurningin er bara hversu mikið maður nýtir þekkingu sína. Ætli ég fái að hafa tölvu á elliheimilinu? 



Sólskinsdrengurinn
febrúar 14, 2009, 2:10 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Ég sá myndina “Sólskinsdrengurinn” í síðustu viku. Þessi mynd er að mörgu leyti mjög athyglisverð. Maður fær innsýn í heim fjölskyldu með einhverft barn, hvernig líf barnsins er og  fjölskyldunnar. En auðvitað getur enginn sem ekki er í þessari aðstöðu skilið til fulls hvernig líf þetta er. Við sem erum foreldrar vitum þó að okkar ósk er að börnin okkar fái notið þess besta, eigi kost á góðri menntun og eigi góða heilsu og helst af öllu hamingjusamt líf. Við reynum eftir mætti að hjálpa börnunum okkar út í lífið því við vitum að við verðum ekki alltaf til staðar fyrir þau. Enginn er eilífur, þannig hugsa líka foreldrar Sólskinsdrengsins. Þannig skil ég ákvörðun þeirra að freista gæfunnar og leita eftir “lækningu” heiminn á enda. Ég er efasemdarmanneskja og hef ekki trú á þessari aðferð. Ekki frekar en ég hafði trú á Íslensku menntasamtökunum á sínum tíma, eða að það virki að nota S.M.T. á alla nemendur. Ef það væri farið út í rannsóknir á þessari aðferð og það yrði sannað að hún virki þá væri ég til í að skoða hana en þangað til segi ég nei takk. Skýringuna hjá mér má líka finna í því að í þau sjö ár sem ég bjó í Danmörku komu upp mál þar sem foreldrar voru ákærðir fyrir kynferðislega misnotkun á fötluðum börnum sínum og var svipuð  aðferð og er sýnd í myndinni notuð við þá upplýsingaöflun. Þegar þessi mál voru skoðuð ofaní kjölinn kom í ljós að kennari barnanna stýrði svörum barnanna og réði þar af leiðandi útkomunni.



Freyja vinnur gullið
febrúar 6, 2009, 8:09 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Freyjan mín keppti með BH-nöglum um gullið í badminton og vann!

naglarnir



Dagur 2 í bloggheimum
febrúar 2, 2009, 8:31 pm
Flokkað undir: Almennt

Þetta blogg og síðan á wikispaces (http://astasigfusdottir.wikispaces.com/)var örugglega erfiðasta fæðing sem ég hef farið í gegnum.  Hinar fjórar ( börnin mín fjögur) voru leikur einn í þessum samanburði! Það tók ekki átta tíma að koma þeim í heiminn. En vonandi verður eftirleikurinn auðveldari og áhyggjulausari…..



Bloggfærslur utn0153
janúar 27, 2009, 9:38 pm
Flokkað undir: Uncategorized
Þakgil 2005

Þakgil 2005

Halló heimur. Þetta er mín fyrsta færsla í Bloggheimum!!!!